sunnudagur, febrúar 03, 2008

Stefán Magnús Bergsson

Sá litli er orðinn 1 mánaða og hefur fengið nafnið Stefán Magnús. Hann dafnar vel, þyngist og lengist eins og hann á að gera. Fylgir vel sinni vaxtarkúrfu segir Molly ljósmóðir. Á lengdina passar hann akkúrat frá lófa til olnbogabótar á pabba sínum. Hann er farinn að brosa, myndast við að hjala og bregður sjálfum sér þegar það kemur óvart hjal :) Honum finnst mjög gaman að vaka hvenær sem er sólahringsins, þá finnst honum tími vera til að við spjöllum og syngjum :) Okkur finnst hann bæta við sig með hverjum deginum.





7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mig langar bara að knúsa hann...knús!

Nafnlaus sagði...

Til hamingju!!!
Cedric

sperla sagði...

Hæ hæ og hjartanlega til hamingju :)
Gangi ykkur allt í haginn.

Bestu kveðjur frá Brisbane
Perla

sperla sagði...

Hæ hæ og hjartanlega til hamingju :)
Gangi ykkur allt í haginn.

Bestu kveðjur frá Brisbane
Perla

Nafnlaus sagði...

Elskurnar okkar! Innilega til hamingju með soninn/bróðurinn, og nafnið fína. Það var tími til kominn að við kíktum inn á síðuna ykkar, svona er þetta húsbyggjendalíf;) bissí bissí. Söknum ykkar og hlökkum til að sjá ykkur öll - e.t.v. í brúðkaupsveislu í sumar?? Ástarkveðjur og knús,
Ragnheiður og Styrmir.
PS spes gaurakveðja til Heiðars frá Styrmi;)

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ sæta mín - gaman að geta fylgst með ykkur hérna :) Strákarnir eru algjört æði!!
Knús, Arna

Nafnlaus sagði...

Hello. This post is likeable, and your blog is very interesting, congratulations :-). I will add in my blogroll =). If possible gives a last there on my blog, it is about the OLED, I hope you enjoy. The address is http://oled-brasil.blogspot.com. A hug.