fimmtudagur, apríl 26, 2007

Feiti kisi - Mjási

Hvað haldi þið? Fundum þriðju kisuna, réttara sagt þá finnur Bergur þessar kisur og kemur með inn :) Þessi kisi er svakalega stór og mikill og gengur undir nöfnunum Feiti kisi eða Mjási. Hann er ný fluttur í húsið við hliðina á okkur. Aumingja Randý litli hefur ekki komið í heimsókn síðan Feiti kisi fór að venja komu sína til okkar. Því Feiti kisi situr alltaf upp á grindverkinu þar sem gatið er í gegnum það því hann sá Randý hlaupa þar í gegn um daginn. Heiðar er hæst ánægður með Feita kisa því hann vill helst vera í fanginu á honum að láta klóra sér og strjúka :)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mjási hlýtur að vera ansi þungur -
en mér finnst hann fallegur. Ömmustrákur er nú alltaf bestur.

Kv.
Amma