föstudagur, ágúst 10, 2007

Karatestrákur!

Okkur langaði til að deila með ykkur myndum af Heiðari í Karategallanum sínum. Hann er sem sagt byrjaður að æfa aftur og hæst ánægður með það.




9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ, rosa flottur gæi!
Flott hjá þér María að byrja í skóla, flýttu þér samt hægt mín kæra. Eitt barn sem ekkert tvö sem tíu! Svo ég tali nú ekki um okkur sem eigum þrjú! Hmmhmm
Héðan er allt gott að frétta, sumri tekið að halla og skólar byrja fljótlega. Er komið nýtt heimilsfang? Er að safna barnafötum í kassa.

P.s. ég á bara strákaföt!

Nafnlaus sagði...

Heiðar minn mikið ertu flottur í karategallanum. Mjási hefur aldeilis stækkað - hvað gefur þú honum að borða?
Heyrumst fljótlega

Mamm-amma

sperla sagði...

Heidar er flottur i gallanum, madur faer bara fidring i taernar og langar helst ad taka minn galla fram :) Bara einn haengur a.......engin shotokan klubbur nalaegt mer ;(

Nafnlaus sagði...

Hæ Heiðar, þú tekur þig mjög vel út í gallanum og í kokutsudachi. Bíð spenntur eftir að sjá fleiri myndir. kveðja, Pabbi

Þorbjörg sagði...

Hæbbs,

Flottur í gallanum. Spurning hvort ég fari að læra einhverja takta hjá þér???

Heyrumst/sjáumst,
Þorbjörg

Nafnlaus sagði...

Þú ert alltaf jafn flottur Heiðar! Hlökkum rosalega til að sjá ykkur. Það er orðið svo langt síðan. Hafið það gott og það er alltaf jafn gaman að lesa færslurnar ykkar og sjá myndirnar. :)

Nafnlaus sagði...

Sæl öll sömul!

Alltof langt síðan ég hef látið heyra frá mér á þessari síðu (ég kannski segi þetta í hvert einasta skipti sem ég kommenta...hmmm?). Hvernig hefur þú það frænka, gengur vel með litla krílíð? ;)

Héðan er allt gott að frétta, ég byrjuð í skólanum, NÓG að gera, geri ekki mikið annað en að lesa...og lesa...og lesa, en ég er mjög ánægð með þetta allt saman! :) Hef ekki yfir neinu að kvarta, mjög spennandi! :)

Bið innilega að heilsa ykkur öllum!

Knus og kram,
Arndís frænka

Þorbjörg sagði...

hmmm spurning hvort ég verði ekki að fara að kíkja í heimsókn... Lítur út fyrir að þið hafið gleymt hvernig eigi að blogga!

Sjáumst,
Þorbjörg

Nafnlaus sagði...

Vá hvað hann er orðin stór Knús og kossar frá mér Kveðja Nína